- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Húsfyllir var á kynningarfundi um Borgarlínu sem fram fór miðvikudaginn 15. janúar í Kópavogi. Fundurinn var haldinn til kynningar á umhverfismatsskýrslu fyrstu lotu Borgarlínu og til að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags. Fyrsta lota liggur milli Ártúnshöfða og Hamraborgar.
Fjallað var um um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt er fjallað um mismunandi útfærslur á hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og almenningssamgangna.
Umhverfismatsskýrslan og skipulagstillögurnar eru aðgengilegar í Skipulagsgáttinni þar sem öll geta kynnt sér gögnin og veitt umsögn en gögnin voru sett inn í nóvember. Athugasemdafrestur er til 25. janúar 2025.
Sambærilegur fundur var haldinn í Reykjavík 9. janúar síðastliðinn. Hægt er að horfa á upptöku af þeim vef á vef Reykjavíkur.