- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Menntasvið Kópavogs fékk nýverið heimsókn frá fulltrúum Mennta- og barnamálaráðuneytisins sem kynntu sér verkefnið Velkomin- Mennt er máttur þegar þú ert sáttur sem fékk styrk frá ráðuneytinu á síðasta ári.
Þróunarverkefnið gengur út á að að efla félagslega og líkamlega heilsu barna, sem miðar að því að hvetja börn með einstaklingsbundum hætti til þátttöku í samfélaginu í gegnum íþrótta- og frístundastarf sem hafa fjölbreyttan tungumála- og menningarlegan bakgrunn. Virkja og valdefla þau og hjálpa til við aðlögun þeirra inn í skóla, íþrótta- og frístundastarf og samfélagið Kópavog.
Á sama tíma er markmiðið að fræða börn með íslensku sem sitt móðurmál um fjölmenningu og efla hæfni þeirra er snýr að menningarnæmi sem gerir þeim kleift að bregðast við af virðingu og samkennd gagnvart fólki, til dæmis af ólíkum uppruna, þjóðernum, menningu og trúarbrögðum. Í gegnum verkefnið er lögð áhersla á inngildingu nemanda þar sem rík áhersla er lögð á að viðurkenna og virða fjölbreytileikann og gera alltaf ráð fyrir honum í öllu starfi með börnum.