Kynntu Vatnsdropaverkefnið á alþjóðlegri ráðstefnu

Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Soffía Karlsdóttir.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Soffía Karlsdóttir.

Hið umfangsmikla barnamenningarverkefni Vatnsdropinn var meðal menningarverkefna sem kynnt voru á alþjóðlegu ráðstefnunni Communicating the Arts sem haldin var í tuttugasta og fimmta skipti dagana 17.-20. júní í Rijksmuseum í Amsterdam.

Mikið fjölmenni sótti ráðstefnuna en frumkvöðull verkefnisins, Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi og Ingibjörg Gréta Gísladóttir verkefnastjóri Vatnsdropans kynntu verkefnið og fóru yfir þýðingu þess og mikilvægi. Megináhersla Vatnsdropans fólst í því að kynna fyrir börnum norrænar bókmenntir og hvernig unnt er að tengja boðskap þeirra við gildi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Rík áhersla var lögð á frumkvæði og sköpunarkraft barnanna sem voru leiðtogar verkefnisins og sýningarstjórar en á þeim tíma sem Vatnsdropinn stóð yfir var börnunum boðið upp á fyrirlestra og námskeið hjá sérfræðingum á ólíkum sviðum. Fjöldi verkefna, sýninga og viðburða var afrakstur þessara fjögurra ára verkefni Vatnsdropans og lifa mörg þeirra enn þann dag í dag.

Samstarfsaðilar verkefnisins voru auk menningarhúsanna í Kópavogi, H.C.Andersen húsið í Óðinsvéum, Múminsafnið í Tampere og Ilon Wikland safnið í Haapsalu, Eistlandi. Vatnsdropinn var fjármagnaður með norrænum og evrópskum styrkjum sem numu alls um hundrað milljónum króna.

Nánar um Vatnsdropann