Líf í lundi

Fræðslusetrið í Guðmundarlundi.
Fræðslusetrið í Guðmundarlundi.

Þriðjudaginn 27. júní næstkomandi verður í samstarfi Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar haldinn viðburðurinn Líf í lundi, þar sem hvatt er til hreyfingar og samveru, skógar- og náttúruupplifunar. Líf í lundi verður nú haldið í sjötta sinn og fer fram í kringum Jónsmessuna víða um land.

DAGSKRÁ

Dagskráin hefst kl 17:00 þegar safnast verður saman í Fræðslusetrinu í Guðmundarlundi í Leiðarenda 3 þar sem verður heitt á könnunni. Fljótlega verður gengið út á Vatnsendaheiði undir leiðsögn og hugað að gróðri og sögu. Á heiðinni verður horft til framtíðar og gróðursettar plöntur í þágu aukinna lífsgæða.

Skógrækt er góð leið til að binda koltvísýring úr andrúmsloftinu til langs tíma og um leið er verið að stuðla að jarðvegsvernd. Sveppum og mordýrum í jarðvegi fjölgar, vatnsmiðlun eflist og skógurinn opnar nýja möguleika til útivistar svo eitthvað sé nefnt.

Að gróðursetningu lokinni verður gengið til baka í Guðmundarlund.

*Athugið að þeir sem ekki treysta sér að ganga út á Vatnsendaheiði en vilja taka þátt í gróðursetningum eða fylgjast með, þá er hægt aka bifreið að gróðursetningarstað.

Að lokinni formlegri dagskrá geta þátttakendur í Líf í lundi dvalið áfram í Guðmundarlundi og bardúsað við ýmislegt skemmtilegt, enda hefur lundurinn upp á margt að bjóða. Þar er meðal annars 10 brauta frísbígolfvöllur, leiktæki og frábær 9 holu minigolfvöllur. Inni í miðjum Guðmundarlundi er Hermannsgarður, lítill og vinalegur blómagarður með steinabeðum, stígum og bekkjum og svo er það auðvitað skógurinn sjálfur sem býður upp á mikla möguleika til leikja og útivistar.

Fyrir þá sem ætla að taka hring á iðjagrænum golfvellinum þá má benda á að hver og einn verður að taka með sér eigin golfkylfur og -kúlur og það sama á við um frísbígolfvöllinn, að fólk verður að koma með sína diska.

Ekki eru allir sem rata í Guðmundarlund og er einfaldast fyrir þá að fara inn á https://ja.is/ og slá inn Leiðarendi 3.