Ljóð óskast

Veitt hafa verið verðlaun kennd við Jón úr Vör frá árinu 2001.
Veitt hafa verið verðlaun kennd við Jón úr Vör frá árinu 2001.

Auglýst er eftir ljóðum í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Skilafrestur er til 5. nóvember.

Ljóði skal skilað í einu eintaki sem merkt er dulnefni. Með eintakinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefninu sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð af dómnefnd en öllum öðrum gögnum eytt.

Utanáskrift umslags er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Menning í Kópavogi
Digranesvegi 1
200 Kópavogi.

Um Ljóðstaf Jóns úr Vör 

Ljóðstafur Jóns úr Vör hefur verið veittur frá árinu 2001 þegar efnt var til ljóðasamkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs, nú menningar- og mannlífsnefnd og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins. 

Dómnefnd fer yfir innsend ljóð, sem send eru undir dulnefni. Þannnig takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.

Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.