Frestun á kaldavatnslokun

Lokað er fyrir kalt vatn í stórum hluta Kópavogs 27.-28. október.
Lokað er fyrir kalt vatn í stórum hluta Kópavogs 27.-28. október.

Fyrirhuguð kaldavatnslokun 3.-4. nóvember frestast vegna seinkunar á afhendingu vatnsveitubúnaðar.

Um lokunina:

Vegna framkvæmda við Arnarnesveg þarf að loka fyrir rennsli á köldu vatni í  Lindahverfi, Smárahverfi, Digranesi og Kársnesi.

Meira um lokun:

  • Lokunin er vegna vinnu við breytingar á stofnlögn og nær hún sem fyrr segir til  Lindahverfis, og alls Kópavogs vestan Reykjanesbrautar (Smára, Digranes, Kársnes) .
  • Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
  • Góð hugmynd gæti verið að fylla á vatnsflöskur fyrir klukkan 22.00 ef þörf er á vatni fyrir nóttina og setja vatn í fötur fyrir klósett.
  • Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
  • Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.

Neyðarsími vatnsveitu er: 840-2690 

Lokunarsvæðið