Lokað fyrir kalt vatn í Salahverfi

Lokað verður fyrir kalt vatn í Salahverfi frá klukkan 22.00 miðvikudaginn 15.október og fram til 04…
Lokað verður fyrir kalt vatn í Salahverfi frá klukkan 22.00 miðvikudaginn 15.október og fram til 04 þann 16.október.

Vegna framkvæmda við Arnarnesvega þar að loka fyrir rennsli á köldu vatni í Salahverfi frá 22:00 þann 15.október til 04.00 að morgni 16.október.

Salalaug lokar kl. 21.30 í stað 22.00 þann 15. október vegna þessa.

Meira um lokun:

  • Lokunin er vegna vinnu við breytingar á stofnlögn og nær hún til alls Salahverfis.
  • Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
  • Góð hugmynd gæti verið að fylla á vatnsflöskur fyrir klukkan 22.00 ef þörf er á vatni fyrir nóttina og setja vatn í fötur fyrir klósett.
  • Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
  • Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.

Neyðarsími vatnsveitu er: 840-2690

Myndin sýnir svæðið sem verður fyrir áhrifum:

Salahverfi lokun