Lokahátíð Skapandi Sumarstarfa verður 24. júlí

Skapandi Sumarstörf í Kópavogi fagna 20 ára starfsafmæli í ár
Skapandi Sumarstörf í Kópavogi fagna 20 ára starfsafmæli í ár

Listafólk á vegum Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi mun sýna afrakstur sumarsins á lokahófi í Salnum næstkomandi fimmtudag 24. júlí. Meðal verkefna í ár eru söngleikur, stuttmynd, hugleiðsla, vegglist, handrit að þáttum, myndlist og smásögur.

 

Dagskráin stendur frá kl. 17-20 og býðst gestum og gangandi að upplifa og rýna í listaverk ungmennana sem þau hafa unnið hörðum höndum að síðustu tvo mánuði. Forsalurinn opnar 17:00 og verður þar hægt að skoða myndlist og ritverk en svo byrjar dagskrá í salnum sjálfum kl. 17:30.

 

Skapandi Sumarstörf í Kópavogi veita ungu listafólki á aldrinum 18-26 ára tækifæri til að vinna að eigin listsköpun og hefur það reynst mikilvægur stökkpallur fyrir margt af efnilegasta listafólki landsins. Í sumar voru starfrækt 13 spennandi og ólík verkefni og stóðu að baki þeim 28 listamenn úr mismunandi miðlum og höfðu þau aðsetur í Molanum, miðstöð ungs fólks.

 

Verið hjartanlega velkomin á lokahóf Skapandi Sumarstarfa í Salnum 24. júlí. Ókeypis inn og opið fyrir allan aldur. Þetta er tuttugasta starfsár Skapandi Sumarstarfa og því ber að fagna!