Höfuðborgarsvæðið markaðssett sem einn áfangastaður

Fulltrúar stofnenda Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, f.v. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafna…
Fulltrúar stofnenda Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, f.v. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Regína Ástvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Þórir Garðarsson, formaður Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðsisins, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Garðabæ og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins var stofnuð í dag, mánudaginn 3.apríl. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og eru stofnaðilar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. 

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir stofnunina gleðilegan áfanga, ekki síst fyrir Kópavog:  "Kópavogur hefur margt að bjóða þegar kemur að því að laða til sín ferðamenn. Við státum af framúrskarandi sundlaugum, öflugum menningarhúsum og svo er Sky Lagoon mikið aðdráttarafl. Náttúran laðar alltaf að og svo er hér Smáralind fyrir þá sem vilja versla  svo eitthvað sé nefnt. Öflugt samstarf á milli sveitafélaganna á svæðinu mun bara koma til með að ná fram betri dreifingu ferðamanna um allt höfuðborgarsvæðið og stækka kökuna. Við erum spennt fyrir framhaldinu."

Nánar:

  • Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að undirbúningi stofnunar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins með aðkomu sveitarfélaga á svæðinu, atvinnulífisins og stjórnvalda.
  • Stofnaðilar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins
  • Með stofnum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er komið á sameiginlegum vettvangi til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið
  • Samhliða stofnfundi verður áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins birt

Í dag, 3. apríl 2023 var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og eru stofnaðilar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Markaðsstofan verður vettvangur til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild og ná þannig betri árangri.

Regína Ásvaldsdóttir formaður stjórnar SSH:

„Undanfarin tvö ár hafa SSH unnið ötullega með ferðaþjónustunni að því að greina með hvaða hætti uppbyggingu og markaðsetningu ferðaþjónustu verði best háttað á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er stigið mikilvægt skref í að tryggja samræmdar aðgerðir sem tengjast ferðaþjónustu á sviði markaðsmála og þróun áfangastaðarins. Með tilkomu stofunnar verður til öflugt samstarf sem mun efla samkeppnishæfni áfangastaðarins, ferðaþjónustunni og höfuðborgarsvæðinu til heilla“.

Þórir Garðarsson formaður Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins:

„Ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir því að stofnuð yrði markaðstofa á höfuðborgarsvæðinu. Með þessu er kominn vettvangur fyrir fyrirtæki til að hafa með beinum hætti áhrif á hvernig markaðssetning og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu muni verða á næstu árum. Er óhætt að segja að þetta er eitt stærsta framfaraskrefið í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu“.

Þórdís Lóa er formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins:

,,Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið að ferðamálum bæði sitt í hverju lagi og saman en nú er komið að því að bjóða öllum hagaðilum að taka þátt í verkefninu og um það snýst Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins. Nú förum við í það að þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda, þannig að allar raddir og áherslur komi fram, verkefninu til heilla”.

Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins:

,,Í áfangstaðaáætlun er sett fram stefna og áherslur fyrir áfangastaðinn til næstu þriggja ára. Er þar meðal annars tekið fram hvaða aðgerðir tengdar ferðaþjónustu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla að framkvæma og þannig geta allir unnið í takt. Þetta er í fyrsta sinn sem áfangastaðaáætlun er gerð fyrir höfuðborgarsvæðið og því ber að fagna“.