Mikilvægur hluti stofnstígs hjólreiða um Kópavog

Frá íbúafundi sem haldinn var í Safnaðarheimili Kópavogskirkju
Frá íbúafundi sem haldinn var í Safnaðarheimili Kópavogskirkju

Forkynning á tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ásbraut stendur nú yfir hjá Kópavogsbæ.

Markmiðið með nýju tillögunni er að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda í samræmi við aðalskipulag Kópavogsbæjar.

Tillagan gerir ráð fyrir nýjum hjólastíg um Ásbraut. Hjólastígurinn er hluti af stærra stígakerfi, stofnstíg um höfuðborgarsvæðið, og er mikilvæg tenging milli sambærilegra stíga í Reykjavík og í Garðabæ.

Vel sóttur íbúafundur var haldinn þann 8. maí í safnaðarheimili Kópavogskirkju, þar sem nágrannar stígsins sem fer um Ásbraut og áhugasamt hjólreiðafólk mættu og ræddu við starfsfólk um legu hjólastígsins og útfærslu.

„Við teljum að endurhönnun göturýmis við Ásbraut auki gæði og ásýnd byggðarinnar til muna og að nýr hjólastígur muni auka hlutdeild vistvænna samgöngumáta,“ segir Auður Dagný Kristinsdóttir, skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar.

Með deiliskipulaginu er núverandi byggðarmynstur fest í sessi og skipulagslegar forsendur lagðar fyrir vistlegri götumynd og öruggari göngu- og hjólaleiðum.

Íbúar eru hvattir til að kynna sér gögnin og taka þátt í umræðum um framtíðarsýn Ásbrautar og hvernig hægt er að stuðla að vistvænni og öruggari samgöngum.

Hægt er að kynna sér skipulagstillöguna hér:

https://www.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/asbraut-nytt-deiliskipulag-lysing-skipulagsverkefnis