Nýr kynningar- og markaðsstjóri menningarmála

Vigdís Másdóttir.
Vigdís Másdóttir.

Vigdís Másdóttir hefur verið ráðin kynningar- og markaðsstjóri menningarmála í Kópavogi en hún var valin úr hópi 120 umsækjenda um starfið.  

Vigdís starfað síðast sem kynningarstjóri Listaháskóla Íslands þar sem hún stýrði öllu kynningar-, markaðs-, og viðburðastarfi skólans og fór fyrir teymi verkefnastjóra þvert á skólann og deilda innan hans.

Vigdís hefur áralanga reynslu í viðburðahaldi auk þess sem hún hefur unnið að fjölbreyttum markaðstengdum verkefnum. Vigdís er með meistaragráðu í listkennslu og leikarapróf frá Listaháskóla Íslands.