Sundlaugar opnar um páskana

afddadfa
afddadfa

Sundlaugar í Kópavogi eru opnar alla hátíðisdagana, þó ekki báðar laugar. Nánar um opnunartíma í Kópavogi um páskana:

Opnunartímar:

Bæjarskrifstofur eru opnar til 16 miðvikudaginn 1.apríl og opna kl. 8 þriðjudaginn 7.apríl.

Kópavogslaug er opin skírdag, laugardag fyrir páska og annan í páskum. 

Salalaug er opin föstudaginn langa, laugardag fyrir páska og páskadag. 

Bókasafn Kópavogs er opið laugardag fyrir páska en lokað aðra hátíðisdaga.

Náttúrusafn er opið laugardag fyrir páska en lokað aðra hátíðisdaga.

Gerðarsafn er opið skírdag og laugardag fyrir páska.

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið alla páskana svo framarlega sem veður og færð leyfir.