Össur Geirsson hlýtur viðurkenningu Barnaheilla 2022

F.v. Ellen Calmon framkvæmdastýra Barnaheilla, Össur Geirsson, skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavo…
F.v. Ellen Calmon framkvæmdastýra Barnaheilla, Össur Geirsson, skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Harpa Rut Hilmarsdóttir, stjórnarformaður Barnaheilla.

Össur Geirsson, skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs hlaut Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2022. Össur hefur í störfum sínum veitt miklum fjölda barna og ungmenna innblástur og hvatningu. Hann hefur óbilandi trú á ungu fólki og hefur einstakt lag á að laða fram það besta í hverju og einu barni. Hann leggur áherslu á samvinnu á meðal nemenda í störfum sínum og kallar fram jákvæðan aga, metnað og samkennd.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla.

Harpa Rut Hilmarsdóttir, formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti hver hlyti viðurkenninguna. Herra Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flutti ávarp og afhenti viðurkenninguna. Svanlaug Böðvarsdóttir nemandi í Fellaskóla flutti atriði úr Skrekk – ,,Skrekkur og Fellaskólafordómar” og Skólahljómsveit Kópavogs flutti tónlistaratriði. Bergrún Íris Sævarsdóttir stjórnarkona Barnaheilla stýrði athöfninni.