Rauð viðvörun er í gildi 6.febrúar frá 8-13.
English below. Frá Neyðarstjórn Kópavogsbæjar: Rauð viðvörun er í gildi vegna veðurs fimmtudaginn 6.febrúar frá 8-13. Hættuástandi hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu vegna veðurs. Almannavarnir hvetja til þess að fólk sé ekki á ferðinni meðan rauð viðvörun er í gildi og að þjónusta sem er ekki ómissandi eða í forgangi sé lokuð.
Eftirfarandi gildir um starfsstöðvar Kópavogsbæjar:
- Röskun verður á skólastarfi. Hefðbundið skólahald fellur niður. Grunn- og leikskólar verða þó ekki lokaðir, en halda úti lágmarksmönnun fyrir þau börn sem nauðsynlega þurfa á því að halda.
- Skólastarf hefst að nýju upp úr kl. 13.00 þegar áætlað er að rauð viðvörun falli úr gildi.
- Menningarhús: Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs, Salurinn og Náttúrufræðistofa Kópavogs opna upp úr kl. 13.00.
- Sundlaugar Kópavogs verða opnar milli 6.30 og 8.00 en loka milli 8 og 13.00 á meðan rauð veðurviðvörun er í gildi.
- Íþróttahús opna upp úr kl. 13.00.
- Bæjarskrifstofur Kópavogs. Húsnæði verður lokað í fyrramálið en símsvörun hefst kl. 08.00. Húsið opnar upp úr kl. 13.00.
- Heimaþjónusta fellur niður til hádegis á morgun nema í undantekningartilvikum sem hlutaðeigandi eru upplýst um.
- Félagsmiðstöðvar aldraðra opna upp úr 13.00.
- Heimsendingu á mat gæti seinkað vegna veðurs.
- Tilkynning verður uppfærð ef þörf krefur til samræmis við gildistíma rauðrar viðvörunar.
English:
A red warning is in effect due to the weather on Thursday, February 6 from 8-13. A state of emergency has been declared in the capital area due to the weather. Civil Defense urges that people do not travel while the red alert is in effect and that services that are not essential or a priority are closed.
The following applies to Kópavogsbær establishments:
- School activities will be disrupted. Traditional schooling is cancelled. Elementary and kindergartens will not be closed, but will maintain minimum staffing for those children who absolutely need it.
- School work starts again from 13.00 when the red alert is scheduled to expire.
- Culture Houses: Gerðarsafn, Kópavog's Library, Hall and Kópavog's Natural History Office open from 13.00.
- Kópavogur's swimming pools will be open between 6.30 and 8.00, but closed between 8.00 and 13.00 while the red weather warning is in effect.
- Sports halls open from 13.00.
- Kópavogur town offices. Housing will be closed in the morning, but answering the phone will start at 08.00. The house opens from 13.00.
- Home care is canceled until noon tomorrow, except in exceptional cases of which the concerned parties are informed.
- Community centers for the elderly open from 13.00.
- Delivery of food to the elderly may be delayed due to weather.