Samkomutakmarkanir frá og með 25. júlí

Breytingar á samkomutakmörkunum gilda 25. júlí til 13. ágúst.
Breytingar á samkomutakmörkunum gilda 25. júlí til 13. ágúst.

Breytingar á samkomutakmörkunum sem gilda 25. júlí til 13. ágúst.

 

Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman er 200 manns. Þessar takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 eru hugsaðar til skamms tíma á meðan verið er að ná tökum á mikilli fjölgun smita síðustu daga. 

 

Í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis er þegar hafinn undirbúningur að því að bjóða þeim sem bólusettir hafa verið með bóluefni Janssen seinni bólusetningu í ágúst. Einnig verður einstaklingum með undirliggjandi ónæmisvandamál og þeim sem talið er að tveir skammtar veiti ekki nægilega góða vörn gegn COVID-19 boðinn þriðji skammtur bóluefnis. 

 

Helstu takmarkanir eru þessar: 

Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin. 

Nándarregla verður almennt 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar verði undanþegin. 

Grímuskylda verður tekin upp þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra reglu, til að mynda í verslunum. Þá er grímuskylda fyrir áhorfendur á íþróttaviðburðum og á menningarviðburðum á borð við leiksýningar, tónleika og bíósýningar. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin.

Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verði 200.

Heilsu- og líkamsræktarstöðvum sem og sund- og baðstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75% af hámarksfjölda leyfilegra gesta. Sameiginlegan búnað skal sótthreinsa milli notenda.

Söfnum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta.

Íþróttaæfingar og - keppnir barna og fullorðinna heimilar með og án snertinga með 100 manna hámarksfjölda. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými sem skulu skráðir í sæti. Veitingasala óheimil á keppnisstöðum.

Æfingar og sýningar sviðslista og sambærilegrar starfsemi heimilar með allt að 100 manns á sviði. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými, svo sem í bíóhúsum. Heimilt að hafa hlé en enga veitingasölu í hléum. Skrá skal gesti í sæti.

Hámarksfjöldi gesta við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga verður 200. 

Opnunartími veitingastaða, skemmtistaða o.þ.h. verður til kl. 23:00 (tæma þarf staði fyrir miðnætti) og hámarksfjöldi gesta 100 manns í rými. 

Vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Skrá skal gesti.

Tjaldstæði og hjólhýsasvæði fari eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis og Ferðamálastofu.

 

Minnisblað sóttvarnalæknis 22. júlí 2021

Reglugerð heilbrigðisráðherra