Stelluróló endurgerður - kynningarfundur 16. apríl

Stelluróló
Stelluróló

Nú stendur til að endurgera Holtsvöll, sem þekktur er sem Stelluróló í daglegu tali og er elsti gæsluvöllurinn í Kópavogi, frá árinu 1959. Kópavogsbær býður til kynningar-, umræðu- og hugmyndafundar í Barnaskóla Kársness fimmtudaginn 16. apríl kl. 17.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávarpar fundinn

Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs, flytur erindi um sögu gæsluvallarins.

Aðalheiður E. Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun ehf., kynnir tillögur um nýja nálgun á nýtingu svæðisins.

Fundarstjóri er Sigrún María Kristinsdóttir, verkefnastjóri íbúatengsla.

Að loknum erindum fá fundargestir tækifæri til þess að spyrja út í tillögurnar sem munu einnig hanga til sýnis á fundinum.

Sigrún María stýrir umræðum en þau Friðrik og Aðalheiður sitja fyrir svörum.

Gestum býðst að koma með hugmyndir.

Heitt á könnunni - hlökkum til þess að sjá ykkur