Stórmeistara fagnað

Ásgeir Baldurs, formaður Breiðabliks, Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og Ásdís Kristjánsdótt…
Ásgeir Baldurs, formaður Breiðabliks, Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Vignir Vatnar Stefánsson er nýjasti stórmeistari Íslands í skák. Vignir æfir með skákdeild Breiðabliks og hélt félagið upp á áfangann í vikunni að viðstaddri Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs.

Vigni er nýorðinn tvítugur. Hann kennir yngri iðkendum skákdeildarinnar auk þess að keppa á mótum um allan heim. Hann lauk nýverið skákmóti í Serbíu þar sem hann tryggði sér stórmeistaraáfangann.