Sumarfrístundin hefst mánudag 11. ágúst í ár 2025 en hún er fyrir verðandi nemendur í 1. bekk. Sumardvöl frístundar er skipulögð í anda þeirrar stefnu að skapa bætta samfellu á milli skólastiga.
Gert er ráð fyrir að börn útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta skólastigi í sumardvöl við sinn hverfisskóla. Sumardvölin er opin frá 8 að morgni til 16 síðdegis og geta foreldrar valið mismunandi dvalartíma yfir daginn. Tekið er á móti börnunum frá 8 til 9. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og hressingu fyrir og eftir hádegi.
Markmið sumarfrístundarinnar er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun nemenda, jafnt félagslega sem námslega að umhverfi grunnskólanna áður en formlegt skólastarf hefst.