Sundlaugar lokaðar 19.janúar

Salalaug í Kópavogi.
Salalaug í Kópavogi.

Sundlaugar í Kópavogi verða lokaðar fimmtudaginn 19.janúar. 

Ástæðan er skert framlag Veitna á heitu vatni til stórnotenda, þar á meðal sundlauga á höfuðborgarsvæðinu, vegna álags á hitaveitukerfi í kuldatíðinni.

Staðan verður metin aftur á fimmtudag og þá tekin ákvörðun um framhaldið. Búist er við að dragi úr frosti og þar með álagi á hitaveitukerfið á föstudag.