Þrjár fengu svarta beltið

Frá vinstri: Marín Björt Gallagher, Ísrún Alda Valsdóttir, Fríða Rakel Valsdóttir og Ásdís Kristján…
Frá vinstri: Marín Björt Gallagher, Ísrún Alda Valsdóttir, Fríða Rakel Valsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir.

Þrjár stúlkur, þær Fríða Rakel Valsdóttir, Ísrún Alda Valsdóttir og Marín Björt Gallagher, fengu svarta beltið í Taekwondo hjá Breiðablik um helgina. Ísrún og Marín eru tólf ára og Fríða fimmtán og er þetta í fyrsta sinn hjá Breiðablik þar sem eingöngu stúlkur eru í svartabeltisprófi.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, afhenti þeim viðurkenningu fyrir árangurinn sem er afrakstur þrotlausra æfinga undanfarin ár.

Við sama tækifæri veitti Hlynur Gissurarson, formaður stjórnar Taekwondo deildar Breiðablik, bæjarstjóra viðurkenningu deildarinnar fyrir frábært framlag til íþróttamála í Kópavogi.

„Það er frábært að sjá metnaðinn hjá þessum flottu iðkendum Taekwondo hjá Breiðablik og skemmtilegt hversu mikil fjölbreytni er í íþróttastarfi í Kópavogi, sem stendur nú sem endranær undir nafninu íþróttabærinn,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.