Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð íþróttaráðs.
Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð Íþróttaráðs Kópavogs
Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi:
a) Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
b) Að veita afreksíþróttafólki styrk sem á lögheimili í Kópavogi en getur ekki stundað sína íþrótt í bæjarfélaginu.
Umsóknum skal skila inn rafrænt í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar á www.kopavogur.is
Opið er fyrir umsóknir frá 7. nóvember – 30. nóvember 2024.
Frekari upplýsingar veitir Gunnar Guðmundsson: gunnarg (hja) kopavogur.is