Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri og Auður Þórhallsdóttir sérfræðingur.
Dregið hefur úr veikindum hjá Kópavogsbæ eftir að farið var í innleiðingu á viðverustefnu sem ber heitið Velferð á vinnustað. Áhersla hefur verið lögð á heilsueflingu starfsfólks, ráðgjöf og þjálfun stjórnenda, uppbyggingu jákvæðrar vinnustaðamenningar og samræmda skráningu veikindafjarvista þannig að hægt sé að nýta gögn til þess að bregðast við fjarvistum.
Árangurinn er sá að skammtímaveikindi hjá Kópavogsbæ fóru úr 4,2% árið 2023 í 4% árið 2025. Það eru samtals 100 dagar eða 122 milljónir króna á þessum tveimur árum miðað við reiknað veikindahlutfall af heildarlaunum.
Hlutfall skammtímaveikinda af heildarveikindum hjá Kópavogsbæ hefur einnig lækkað. Þá fóru skammtímaveikindi hjá leikskólum úr 4,9% árið 2023 í 4,5% árið 2025, en Kópavogsmódelið var innleitt árið 2023. Mælingar sýna að eftir breytingarnar í leikskólunum hefur mönnun gengið betur, álagið er minna í upphafi og lok dags og starfsfólk upplifir betra starfsumhverfi. Árangur í lækkun veikindafjarvista hefur orðið á fleiri starfsstöðum hjá bænum. Það eru jákvæðar vísbendingar og vonir bundnar við enn frekari árangur.
Meðal nýjunga sem gripið hefur verið til eru umhyggjusamtöl stjórnenda en í þeim ræða stjórnendur fjarvistir við starfsfólk. Einnig er mikið lagt í stuðning við stjórnendur og þjálfun, skýrt er til hvaða aðgerða stjórnendur geta tekið og starfsfólki er boðin stuðningur og ráðgjöf eftir þörfum.
„Árið 2023 fór Kópavogsbær að greina markvisst veikindatölfræði sem gerir stjórnendum kleift að greina á milli ólíkra tegunda veikinda. Skýr viðverustefna er lykilatriði til að takast á við betri viðveru og virkni starfsfólks. Markviss söfnun veikindatölfræði er einnig forsenda umbótaaðgerða,“ segir Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri.
„Stjórnendur hjá Kópavogsbæ hafa fengið stuðning og hvatningu við innleiðingu á Velferð á vinnustað og staðið sig mjög vel. Bæði þeim og starfsfólki finnst gott að vita að það er skýr og samræmd stefna á öllum vinnustöðum bæjarins. Við vitum öll að þegar mæting er góð hefur það mjög góð áhrif á vinnustaðamenninguna,” segir Auður Þórhallsdóttir, sérfræðingur í innleiðingu verkefnisins.
Langtímaveikindi eru nú 2,3% af öllum veikindum og verkefnið framundan er að skoða hvort hægt sé að ná þeim jafnframt niður, segir Sigríður Þrúður.