Frá Virkniþingi í Kópavogi.
Virkniþing Kópavogsbæjar sem haldið var í samstarfi við hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir var afar vel sótt og mæltist vel fyrir.
Björg Baldursdóttir formaður velferðar- og mannréttindaráðs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávörpuðu þingið og buðu gesti velkomna. ´
Á Virkniþinginu, sem haldið var í Kórnum í Kópavogi miðvikudaginn 25. febrúar, kynntu fyrirtæki og stofnanir þjónustu sína fyrir eldri íbúum í Kópavogi en meginmarkmið Virkniþingsins er að koma fjölbreyttu starfi, þjónustu og vöru sem er í boði á framfæri, stuðla að félagslegri virkni eldra fólks í Kópavogi og auka þannig lífsgæði eldra fólks.
Þá flutti Viðar Halldórsson erindi um félagslega töfra og félagar í Virkni og vellíðan buðu upp í línudans.
