Viltu efla menningu og mannlíf í Kópavogi?

Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóði nefndarinnar. Markmiðið er að efla og auðga menningar- og mannlíf bæjarins með viðburðum sem fela í sér nýsköpun og stuðla að aðgengi sem flestra. Við hvetjum einstaklinga, listhópa, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs til að sækja um.

Við leitum sérstaklega að verkefnum og viðburðum sem

  • Einkennast af nýsköpun, ferskleika og skapandi hugsun
  • Eiga sér stað í efri byggðum Kópavogs
  • Stuðla að tengslum manns og náttúru, með sérstöðu Náttúrufræðistofu Kópavogs í huga
  • Bjóða upp á gott aðgengi og höfða til sem flestra íbúa bæjarins

Umsókn þarf að innihalda

  • Skýra lýsingu á gildi verkefnisins fyrir menningar- og mannlífið í Kópavogi
  • Framkvæmdaáætlun
  • Greinargóða fjárhagsáætlun

Rafrænar umsóknir ásamt úthlutunarreglum og menningarstefnu Kópavogs má finna á heimasíðunni meko.is. Frekari fyrirspurnir sendist til Soffíu Karlsdóttur, forstöðumanns menningarmála í Kópavogi, soffiakarls@kopavogur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 23. október.