Niðurstöður greiningar á áfangastaðnum Kópavogi verða kynntar á fundi 25.febrúar.
Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins boða til opins fundar í Borgum safnaðarheimili Kársnessafnaðar miðvikudaginn 25. febrúar kl. 15:00.
Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það markmið að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu ásamt því að nýtast í vinnu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins meðal annarsí tengslum við þróun og markaðssetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Farið var í greiningu á áfangastaðnum og haldin var vinnustofa með hagaðilum þar sem rætt var um sérstöðu Kópavogs sem áfangastaðar, áhugaverða markhópa ásamt tækifærum og áskorunum sem tengjast áfangastaðnum. Einnig voru þátttakendur beðnir um að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að hvetja gesti til að dvelja lengur í Kópavogi.
Nú er boðað til opins fundar þar sem ætlunin er að fara yfir niðurstöður verkefnisins og eiga samtal um framhaldið.
Öll velkomin sem hafa áhuga á þróun Kópavogs sem áfangastaðar þar með talið íbúar, fyrirtæki í ferðaþjónustu og öðrum skyldum greinum og aðrir hagaðilar.