Gjaldskrár hækka ekki

Börn að leik í sandkassa
Börn að leik í sandkassa

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á fundi sínum á þriðjudagskvöld að gjaldskrár í skólum hækki ekki um áramót. Það þýðir að leikskóla- og matargjald verður óbreytt í leikskólum og matargjald verður óbreytt í grunnskólum. Verðskrá dægradvalar verður sömuleiðis óbreytt.

Bæjarstjórn samþykkti jafnframt að hækka ekki mat fyrir eldri borgara, heimilishjálp eða heimkeyrslu á mat til þeirra.
 
Markmiðið með ákvörðuninni er að draga úr verðbólgu og liðka til fyrir komandi kjarasamningum. „Bæjarstjórn hvetur sveitarfélög og aðra opinbera aðila til þess að falla einnig frá gjaldskrárhækkunum þannig að forða megi vísitöluhækkunum á gjaldskrám síðar á árinu,“ segir í bókun bæjarstjórnar Kópavogs.