Götuleikhúsið í leikskólum Kópavogs

Götuleikhúsið í Kópavogi sumarið 2014.
Götuleikhúsið í Kópavogi sumarið 2014.

Götuleikhúsið hefur undanfarnar tvær vikur heimsótt leikskólana í Kópavogi og flutt leikritið Leitin að Póló prins við góðar undirtektir. Þetta er þriðja árið í röð sem Götuleikhúsið flytur frumsamið verk. Götuleikhúsið skipa fjórtán ungmenni á aldrinum sextán til sautján ára.

Götuleikhúsið er hluti af sumarvinnu Kópavogsbæjar en það er frístunda- og forvarnadeild sem hefur veg og vanda af því.

Undanfarin þrjú ár hefur það verið markmið Götuleikhússins að semja eigið leikrit með spuna og flytja á öllum leikskólum Kópavogs. 

Fyrstu vikuna eru ungmennin í undirbúningi fyrir 17. Júní hátíðarhöldin svo tekur við persónusköpun og spuni sem verður svo undirstaðan í leikritinu. 

Eftir æfingar og þegar leikritið er tilbúið til sýningar tekur það um tvær vikur að fara með leikritið á milli leikskólanna.  Leikritið í ár, Leitin að Póló Prins, fjallar um ungan prins og ævintýri hans.

Sýningar hafa gengið vel í sumar þrátt fyrir rigningu.  Leikritið hefur vakið mikla lukku meðal barna og starfsfólks leikskólanna og sannarlega orðið að skemmtilegri hefð.  Götuleikhúsið brýtur upp daginn á leikskólunum og ungmennin þjálfast í framkomu.  

Fjölbreytileikanum er fagnað í Götuleikhúsinu enda hafa ungmennin ólíka reynslu og bakgrunn af leiklist sem nýtist í sköpuninni og myndar skemmtilega dýnamík í hópnum.

Leikarar Götuleikhússins eru: Alexander Valur, Birkir, Dóra Líf, Elís Orri, Evlalía Kolbrún, Gréta, Helga Sóley, Íris Ösp, Kjartan, Kolfinna Katla, Kristjana Ýr, Margrét Inga, Valgerður Embla og Vignir Daði.  Leikstjórar Götuleikhússins eru: Elísabet Skagfjörð og Óli Örn.