Úthlutun í leikskóla fyrir haustið 2026

Frá leikskólanum Álfaheiði.
Frá leikskólanum Álfaheiði.

Úthlutun fyrir skólaárið 2026 - 2027 hefst 9. mars næstkomandi og stendur fram í apríl. Gert er ráð fyrir að börn sem fædd eru í júní 2025 eða fyrr fái úthlutun.

Umsóknarfrestur:
Umsóknir sem berast eftir 5. mars fara á bið/frystingu á meðan úthlutun stendur yfir.

Sótt er um leikskóla hér:
https://umsokn.vala.is

Nýr leikskóli við Skólatröð
Unnið er að uppbyggingu nýs leikskóla við Skólatröð og stefnt er að því að starfsemi hefjist áramótin 2026/2027. Þar verða leikskóladeildir fyrir um 60 börn, sem mun styrkja leikskólastarf í bænum til framtíðar.