Vorhreinsun í Kópavogi

Vorhreinsun fer fram dagana 30.apríl til 19.maí.
Vorhreinsun fer fram dagana 30.apríl til 19.maí.

Vorhreinsun í Kópavogi fer fram dagana 30.apríl til 19.maí. Þá daga verða settir upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í Kópavogi sem verða aðgengilegir 30. apríl til 19. maí.

Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum

  • Kársnes, við grenndarstöðina Borgarholti
  • Digranes, við íþróttahúsið Digranesi
  • Smára- og Lindahverfi, neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2
  • Sala- og Kórahverfi, við Salalaug á bílastæði
  • Þinga- og Hvarfahverfi, á bílastæði við Vallakór 8

Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Við bendum á endurvinnslustöðvar Sorpu sem taka við öðrum úrgangi.

Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.