1300 íbúðir rísa á næstu árum

Kort sem sýnir uppbyggingarsvæði í Kópavogi.
Kort sem sýnir uppbyggingarsvæði í Kópavogi.

Í Kópavogi eru yfir 500 íbúðir í byggingu og verða yfir 120 þeirra tilbúnar næsta hálfa árið. Flestar þessarar íbúða eru í fjölbýlishúsum sem eru staðsett allt frá Kársnesi upp í efri byggðir Kópavogs. Gert er ráð fyrir að á næstu fjórum árum rísi  um það bil 1300 íbúðir í Kópavogi, af öllum stærðum og gerðum.  

Helstu þéttingarsvæði Kópavogs á næstu árum eru Glaðheimasvæðið, Auðbrekka, Kársnes og svæðið sunnan Smáralindar. Þá er Lundur neðan Nýbýlavegar enn í byggingu en þar verða 390 íbúðir þegar hverfið er fullbyggt. Á Glaðheimasvæði er gert ráð fyrir 530 íbúðum og er bygging hafin á 320 íbúðum á austurhluta þess svæðis. Skipulag sunnan Smáralindar gerir ráð fyrir 500 íbúðum í bland við verslun- og þjónustu, í fyrsta áfanga á Auðbrekkusvæðinu verða 160 íbúðir og í bryggjuhverfinu á Kársnesi verða alls  400 íbúðir þegar það er fullbyggt. Öll uppbygging í Kópavogi er í grónum hverfum og nýbyggingar að langmestu leyti fjölbýli þó enn séu til einbýlishúsalóðir til úthlutunar í Vatnsendahverfi.

„Það er jákvætt að það sé svo mikil uppbygging í Kópavog og ánægjulegt að markmið nýsamþykktar húsnæðisskýrslu um að auka framboð á litlum íbúðum í nýju húsnæði muni nást á næstu árum. Við viljum að fólk á öllum aldri og fjölskyldur af öllum stærðum og gerðum geti fundið húsnæði sem hentar í Kópavogi,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs. 

Uppbygging í Kópavogi er kynnt á sýningunni Verk og Vit í Laugardalshöll. Þar má sjá hvar verið er að byggja íbúðarhúsnæði í bænum og hvers konar húsnæði er í byggingu.

 Markaðsstofa Kópavogs skipuleggur sýningarsvæði Kópavogs sem er samstarf Kópavogsbæjar og byggingaraðila. Sýningin er opin fagaðilinum í dag og á morgun en almenningi um helgina.