64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi

Þjónustumiðstöð er í brúna húsinu og mun nýtt hjúkrunarheimili tengjast því. Mynd/Hrafnista
Þjónustumiðstöð er í brúna húsinu og mun nýtt hjúkrunarheimili tengjast því. Mynd/Hrafnista

Samningur um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis í Boðaþingi var samþykktur í Bæjarstjórn Kópavogs í gær, 24. nóvember, með öllum greiddum atkvæðum.

„Bæjarstjórn Kópavogs lýsir yfir ánægju með að loks skuli vera að komast á samningur milli Kópavogsbæjar og heilbrigðisráðuneytisins um byggingu 64 hjúkrunarrýma við Boðaþing. Hjúkrunarrýmin eru kærkomin viðbót við þau 44 hjúkrunarrými sem ríkið rekur nú þegar í Boðaþingi og koma til með að leysa úr brýnni þörf fjölda þeirra sem eru á biðlista eftir hjúkrunarrýmum,“ segir í sameiginlegri bókun Bæjarstjórnar.   

Miðað er við að framkvæmdir við heimilið hefjist í ársbyrjun 2022 og að það verði tekið í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2024. Áætlaður kostnaður vegna byggingu hjúkrunarheimilisins eru rúmir þrír milljarðar og skiptist kostnaðurinn þannig að 85% greiðist úr ríkissjóði en 15% af Kópavogsbæ. Að auki leggur Kópavogsbær til lóð undir hjúkrunarheimilið að verðmæti um 100 milljónir. Nýja byggingin mun tengist þjónustumiðstöðinni í Boðaþingi sem bærinn byggði og rekur í samstarfi við ríkið og rekstraraðila Boðaþings.

Stjórnun og ábyrgð á undirbúningi verkefnisins verður hjá heilbrigðisráðuneytinu og Kópavogsbæ sem munu skipa fjóra í starfshóp vegna verkefnisins, tvo frá Kópavogsbæ og tvo frá heilbrigðisráðuneytinu. Fyrsta verkefni hópsins verður við gerð kröfu- og tæknilýsingar vegna alútboðs. Við þá vinnu verður haft samráð við Framkvæmdasýslu ríkisins sem mun hafa umsjón með framkvæmd verksins.