Barnaskóli Kársness var tekinn í notkun í ágúst 2025.
Í minnisblaði frá lögmanni Kópavogsbæjar sem lagt var fram í Bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 5. febrúar er farið yfir ástæður þess að trúnaður ríki um gögn og upplýsingar um uppgjör kostnaðar við endurbyggingu skólans.
Þar segir meðal annars að markmið sé að sækja bætur vegna viðbótarkostnaðar sem bærinn hefur þurft að leggja í í kjölfar riftunar á verktakasamningi við ítalska verktakann Rizzani.
Fram kemur að það sé að mati lögmannsins mikilvægt að gætt verði trúnaðar um allar sundurliðanir og greiningar á kostnaði við endurbyggingu þar til kröfugerð Kópavogsbæjar hafi verið lögð fram fyrir gerðardómi. Mat lögmanns er að slíkur trúnaður auki líkur á að takist að endurheimta viðbótarkostnað. Þegar kröfugerð hefur verið lögð fram er ekki lengur þörf á slíkum trúnaði.
Minnisblað um málefni Barnaskóla Kársness