Aðgengi í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum

Kort sem sýnir hjáleið og götulokanir í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum.
Kort sem sýnir hjáleið og götulokanir í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum.
Takmarkanir verða á umferð í og við Kórinn í tengslum við stórtónleika Laufeyjar helgina 14. og 15. mars frá kl. 15.30 - 00.00.

Götulokanir munu þó ekki hamla aðgengi íbúa að heimilum sínum í hverfinu. 

Þau sem búa í Vallakór 6B hafa fengið bréf í póstkassa sem heimilar þeim akstur í gegnum lokanir til og frá sínum bílakjallara, en Vallakór 6B er eina húsið sem lendir innan lokunarsvæðis þar sem ekki er hægt að fara hjáleið. Takmarkanir hamla ekki aðgengi annarra að sínum heimilum.

Takmarkanir á almennri umferð eru gerðar, ekki síst í þeim tilgangi að vernda hverfið næst Kórnum og íbúa þess. Eina leiðin til að tryggja aðgengi þeirra og annarra sem þurfa að komast að og frá Kórnum á þessum tímum, er að taka stjórn á umferðinni og takmarka almenna umferð.

Tónleikagestum er bent á að taka strætó frá Smáralind en skipulagðar ferðir verða frá Smáralind frá 17.30. Einnig verður akstur leigubíla heimill að sérstakri stoppustöð sem verður í um 200 m fjarlægð frá húsinu. Engin stæði eru fyrir gesti hjá Kórnum en bílastæði eru fyrir gesti hjá Smáralind.

Á vef tónleikahaldara eru ítarlegri upplýsingar um aðgengi:

Spurt og svarað: senalive.is/laufey-faq
Allt um tónleikana: senalive.is/laufey