Ársreikningur Kópavogs 2014

Skjaldarmerki Kópavogsbæjar
Skjaldarmerki Kópavogsbæjar

 sem var lagður fram í bæjarráði í morgun og verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs 28. apríl.

Niðurgreiðsla skulda gengur samkvæmt áætlun, skuldahlutfall bæjarins lækkaði úr 185% í 175% á árinu 2014 en það var 242% þegar hæst var árið 2010. Skuldahlutfall A-hluta er nú 148% og er þar með komið undir lögbundið 150% viðmið. Samkvæmt aðlögunaráætlun verður skuldahlutfall samstæðu komið undir 150% viðmið árið 2018.

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar 660 milljónir króna á árinu 2014 en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 677 milljónum króna. Tekjur sveitarfélagsins námu 22,7 milljörðum en gert var ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 22 milljörðum króna. Eigið fé  nam í árslok 2014 ríflega 16,1 milljarði króna.

Laun og launatengd gjöld námu í heild 11 milljörðum og voru um 5% yfir áætlun en á móti kemur að tekjur voru 3% yfir áætlun og verðbætur lægri en áætlað var vegna lítillar verðbólgu.

Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu var 2.825 í árslok 2014 en meðalstöðugildi voru 1.960.

„Það er ánægjulegt að afkoma bæjarins er í samræmi við þær áætlanir sem lagðar voru fram, skuldir halda áfram að lækka og skuldahlutfall sömuleiðis. Hins vegar er því ekki að neita miklar  hækkanir launaliða hafa sín áhrif, sem meðal annars birtist í því að útreikningur á lífeyrisskuldbindingum hækkar um 440 milljónir umfram áætlanir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.

Íbúar Kópavogsbæjar þann 1. desember 2014 voru 33.095 og fjölgaði þeim um 792 frá fyrra ári eða um 2,5%.

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2014