Auðunn og Rakel íþróttakarl og íþróttakona ársins

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Rakel Hönnudóttir, Auðunn Jónsson og Una María Óskarsdóttir, forma…
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Rakel Hönnudóttir, Auðunn Jónsson og Una María Óskarsdóttir, formaður íþróttaráðs.

Auðunn Jónsson kraftlyftingamaður úr Breiðabliki og Rakel Hönnudóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2013. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum nú undir kvöld. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og Una María Óskarsdóttir, formaður íþróttaráðs Kópavogs, afhentu þeim hvoru um sig 150 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá íþróttaráði.

Auðunn og Rakel voru valin úr hópi 47 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum og almenningi í bænum. 

Kópavogsbær hefur valið íþróttakarl og íþróttakonu frá árinu 1998, fyrst sveitarfélaga. Önnur sveitarfélög og sérsambönd innan Íþróttasambands Íslands fylgdu í kjölfarið.

Auðunn Jónsson

Auðunn Jónsson hefur um árabil verið í flokki bestu kraftlyftingamanna heims og unnið til fjölda verðlauna bæði hérlendis og erlendis.  Hann varð meðal annars heimsmeistari í réttstöðulyftu árið 2012.  Á dögunum var hann valinn kraftlyftingamaður ársins af Kraftlyftingasambandinu enda árangurinn framúrskarandi. Á liðnu ári ber hæst Evrópumeistaratitill Auðuns í réttstöðulyftu á EM í Tékklandi.  Áður hafði Auðunn unnið til silfurverðlauna í hnébeygju og bronsverðlauna í bekkpressu  á mótinu og endaði í 3. sæti í samanlögðu með 1.040 kíló.  Hann er nú í 10. sæti á heimslista Alþjóðakraftlyftingasambandsins í sínum þyngdarflokki.

Rakel Hönnudóttir

Rakel Hönnudóttir gekk til liðs við okkur í Breiðablik fyrir tímabilið 2012.  Frá þeim tíma hefur hún verið lykilleikmaður í liði Breiðabliks, leikið 32 deildarleiki og skorað í þeim 19 mörk. Í úrslitaleik Borgunarbikarsins í fyrra skoraði hún sigurmarkið í 2-1 sigri á Þór/KA og tryggði þar með Breiðabliki fyrsta stóra titilinn frá árinu 2005 í kvennaboltanum.

Rakel hefur leikið 132 leiki í efstu deild og skorað í þeim 93 mörk. Hún var í íslenska kvennalandsliðinu sem náði sínum besta árangri sem kvennalandsliðið hefur náð hingað til,  þegar liðið komst í 8-liða úrslit í lokakeppni EM í Svíþjóð. Þar lék hún allar mínútur liðsins í mótinu sem segir allt um styrk og getu þessarar mögnuðu íþróttakonu.  Rakel er vel að tilnefningunni komin þar sem hún er mikil fyrirmynd allra ungra knattspyrnukvenna hvort sem er innan eða utan vallar.

Viðurkenningar

Flokkur 17 ára og eldri:

Aðalheiður Rósa Harðardóttir karate, Aníta Ósk Hrafnsdóttir sund, Auðunn Jónsson kraftlyftingar, Berglind Gígja Jónsdóttir blak, Birgir Leifur Hafþórsson golf, Birkir Gunnarsson tennis, Bjarki Már Gunnarsson handknattleikur, Brynjar Júlíus Pétursson blak, Glódís Guðgeirsdóttir hópfimleikar,  Gunnhildur Kristjánsdóttir golf, Jón Margeir Sverrisson sund, Júlía Grétarsdóttir listhlaup á skautum,  Kári Steinn Karlsson frjálsar íþróttir, Ólafur Garðar Gunnarsson áhaldafimleikar, Rakel Hönnudóttir knattspyrna, Stefanía Valdimarsdóttir frjálsar íþróttir.

Flokkur 13 til 16 ára:

Aníta Björk Bárðardóttir handknattleikur, Aníta Lóa Hauksdóttir dans, Anna Soffía Grönholm tennis, Athena Neve Leex sund, Elín Sóley Hrafnkellsdóttir körfuknattleikur, Elísabet Einarsdóttir blak, Esther Rós Arnarsdóttir knattspyrna, Freydís Eiríksdóttir golf, Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttir, Kristín Edda Sveinsdóttir hjólreiðar, Kristín Hermannsdóttir hestaíþróttir, Laufey Lind Sigþórsdóttir karate, Margrét Hrönn Jóhannsdóttir dans, Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir fimleikar, Unnur Elísabet Eiðsdóttir knattspyrna,  Anton Magnússon tennis,  Aron Breki Heiðarsson karate, Brynjar Karl Ævarsson körfuknattleikur, Daníel Már Kristinsson sund, Ernir Bjarnason knattspyrna, Gunnar Bjarki Jónsson siglingar, Hrannar Jónsson áhaldafimleikar, Höskuldur Þór Jónsson dans, Marvin Snær Eysteinsson knattspyrna, Óðinn Þór Ríkharðsson knattspyrna og golf, Pétur Fannar Gunnarsson dans, Theódór Óskar Þorvaldsson blak, Valdimar Friðrik Jónatansson frjálsar íþróttir, Viktor Ben Gestsson kraftlyftingar og Þorvaldur Ingi Elvarsson hestaíþróttir.

Flokkur ársins 2013 var kjörinn meistaraflokkur Gerplu í hópfimleikum kvenna en liðið varð Norðurlandameistari í hópfimleikum kvenna auk þess að verða bæði Íslands- og bikarmeistari.

Heiðursviðurkenningu íþróttaráðs hlaut Erling Ó. Sgurðsson, hestamaður úr hestamannafélaginu Spretti.

Einnig voru afhentir fyrir hönd íþróttaráðs Kópavogs  styrkir úr Afrekssjóði íþróttaráðs og viðurkenningar fyrir árangur á alþjóðlegum vettvangi.