Auglýst er eftir bæjarlistamanni Kópavogs 2026.
Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um Bæjarlistamann Kópavogs 2026. Skilyrði er að bæjarlistamaður
eigi lögheimili í Kópavogi.
Gert er ráð fyrir að bæjarlistamaðu taki þátt í að efla áhuga á list og listsköpun meðal bæjarbúa m.a. með viðburðum sem tengjast fagsviði viðkomandi.
Í umsóknum eða ábendingum skulu koma fram helstu upplýsingar um viðkomandi, m.a. náms- og starfsferill og hugmyndir um með hvað móti listamaðurinn getur auðgað lista- og menningarlíf bæjarbúa. Menningar- og mannlífsnefnd fer yfir innsendar tillögur og velur úr þeim. Styrkupphæð bæjarlistamanns er
1,5 milljónir króna.
Tekið er á móti umsóknum og ábendingum til og með 15. apríl á netfanginu menning@kopavogur.is.
Nánari upplýsingar um reglur um tilnefningu Bæjarlistamanns Kópavogs má finna á heimasíðunni meko.is