Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi skólastarf

Skólanefnd Kópavogs auglýsir eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs. Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú til fimm verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi.

Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni:
 

–       að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð.

–       að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara í skólastarfi.

–       að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi skóla og utan.

Tilnefningar skulu berast  eigi síðar en 15. mars 2013.