Auglýst eftir umsóknum um menningarstyrki

Kópavogsbær
Kópavogsbær

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði. Umsóknum skal skila fyrir 21. janúar 2015. Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi. Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum og listhópum.

Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og afgreiðir þær. 

Umsóknareyðublöð fást á vef Kópavogsbæjar eða hjá þjónustuveri bæjarins, Fannborg 2.

Á umsóknum skal standa:

Lista- og menningarsjóður

Fannborg 2

200 Kópavogur.