Bókavogur – Lestrarátak í Kópavogi 14.–20. mars

Bókavogur – Lestrarátak í Kópavogi 14.–20. mars
Bókavogur – Lestrarátak í Kópavogi 14.–20. mars

Bókavogur – Lestrarátak í Kópavogi 14.–20. mars

Kópavogsbær stendur dagana 14.–20. mars fyrir sameiginlegu lestrarátaki undir heitinu Bókavogur – þar sem fjölskyldan les saman. Markmiðið er að efla lestraráhuga, styrkja læsi í víðum skilningi og skapa jákvæða upplifun í kringum bækur og lestur fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur í öllum hverfum bæjarins.

Stofnanir bæjarins – leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, bókasöfn og íþróttamannvirki – taka höndum saman og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem spannar allan marsmánuð og nær hámarki 14.–20. mars.

Leikskólarnir leggja áherslu á bókagleði, orðaforða og samveru með fjölskyldum. Víða eru settir upp bókaormar, Lubbabein send heim, kósí lestarkrókar útbúnir og boðið upp á bókabíó, sögupoka og auknar ferðir á bókasöfn. Sumir leikskólar vinna með bókagerð, aðrir endurnýja bókahillur eða bjóða upp á skiptibókamarkaði. Víða er sérstaklega hvatt til heimalesturs og foreldrar fá tækifæri til að taka virkan þátt í verkefnum.

Grunnskólarnir vinna fjölbreytt verkefni sem tengja lestur við sköpun, tónlist, samvinnu og fræðslu. Nemendur heimsækja bókasöfn, taka þátt í vinalesturspörum, bókaklúbbum, lestrarmaraþoni og skapandi verkefnum á göngum skólanna. Í sumum skólum eru sérstök þemu, svo sem tónlistarverkefnið Kópavogsskáldin, Harry Potter lestrarleikar eða ferðaþema í lestri. Páska-lestrarátök eru einnig á dagskrá í nokkrum skólum.

Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar bæjarins taka þátt með fjölbreyttum hætti, meðal annars með páskalestrarverkefnum, skapandi smiðjum og hvatningu til lestrar í daglegu starfi.

Bókasöfn Kópavogs gegna lykilhlutverki í Bókavogi. Aðalsafnið heldur opnunarhátíð 14. mars, og á Lindasafni fer fram Skrímslasmiðja með Alexöndru Dögg Steinþórsdóttur sama dag. Þá tekur Ævar Þór Benediktsson á móti 4. bekkingum í verkefninu Menning fyrir alla dagana 2.–9. mars.

Við opnunina á Bókasafni Kópavogs 14. mars setur Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri átakið formlega. Þar kemur fram barnabókahöfundurinn góðkunni Gunnar Helgason, sem les upp úr uppáhaldsbókunum sínum og ætlar að auki að gefa gestum smá nasaþef af næstu bók sinni.  Leikkonan Þórunn Arna Kristjánsdóttir segir skemmtilegar sögur og  Svakalega sögusmiðjan verður svo á staðnum, undir stjórn Evu Rúnar Þorbergsdóttur rithöfundar og Blævar Guðmundsdóttur rithöfundar og teiknara. Í sögusmiðjunni fá fjölskyldur tækifæri til að skapa saman sögupersónur, ævintýraleg sögusvið og spennandi sögur. 

 

Dagskrá:

Kl. 14:00-14:10 Ávarp bæjarstjóra – formleg opnun Bókavogs. 

Kl. 14:10-14:30 Gunnar Helgason les upp úr uppáhalds bókunum sínum og gefur okkur nasaþef af sinni næstu bók! 

Kl. 14:30-16:00 Svakalega sögusmiðjan – Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorbergsdóttir 

Kl. 15:00-16:00 Leikkonan Þórunn Arna Kristjánsdóttir les upp úr völdum barnabókum.  

 

Saman mynda þessi fjölbreyttu verkefni lifandi og skapandi lestrarhátíð um allan Kópavog, þar sem lestur er gerður að sameiginlegri upplifun barna, ungmenna, fjölskyldna og starfsfólks. Með Bókavogi er lögð áhersla á að gera lestur að gleðigjafa, samverustund og uppsprettu nýrra hugmynda í samfélaginu.