Áramót í Kópavogi

Flugeldasýning verður í Kópavogi um áramótin.
Flugeldasýning verður í Kópavogi um áramótin.

Hjálparsveit skáta stendur fyrir flugeldasýningu á gamlárskvöld klukkan níu. Þá verður brenna í Gulaþingi kl. 20.30. 

Flugeldasýningin er staðsett austan Reykjanesbrautar, á Glaðheimasvæðinu. Hún er er sýnileg víða að, til að mynda úr Smárahverfi, Lindum, Sölum og sunnanverðu Digranesi. Þá er fjöldi bílastæði í næsta nágrenni, ef fólk vill njóta í bíl. 

Áramótabrenna verður haldin í Gulaþingi. Brennan, sem er haldin og skipulögð af íbúum, hefur verið haldin um árabil.

Engin brenna verður hins vegar í Kópavogsdal eins og fram kom í frétt sem birt var fyrir jól