Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör

Brynja Hjálmsdóttir handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2022.
Brynja Hjálmsdóttir handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2022.

Ljóðstafur Jóns úr Vör var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 20.febrúar en hátíðin fagnar tuttugu ára afmæli sínu um þessar mundir.

Ljóðstafinn hlaut Brynja Hjálmsdóttir fyrir ljóðið Þegar dagar aldrei dagar aldrei.

Jakub Stachowiak hlaut önnur verðlaun fyrir ljóðið Dreymt á jafndægurnótt og þriðja sæti hlaut Elín Edda Þorsteinsdóttir fyrir ljóðið Kannski varstu allan tímann nálægt.

Að auki hlutu sjö ljóð sérstaka viðurkenningu dómnefndar: Svefnrof eftir Draumeyju Aradóttur, Getraunir eftir Guðrúnu Brjánsdóttur, Vista Canale eftir Hallgrím Helgason, Kvöldganga að hausti eftir Jón Hjartarson, Það sem ég á við með með orðinu hjónasæng eftir Ragnar H. Blöndal og Silfurstrengir og A-hús eftir Sigrúnu Björnsdóttur.

212 ljóð bárust í keppnina að þessu sinni í ár en ljóðin mega ekki hafa birst áður og skulu send inn undir dulnefni höfundar. Dómnefnd skipuðu að þessu sinni Ásta Fanney Sigurðardóttir (formaður), Anton Helgi Jónsson og Kristín Svava Tómasdóttir.

Við sama tilefni voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs sem fyrst var haldin árið 2012 og var dómnefnd sú sama.

Þar hlaut 1. verðlaun Friðjón Ingi Guðjónsson, 10. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Hugmynd. Í öðru sæti var Sóley June Martel, 6.bekk, Salaskóla fyrir ljóðið Þegar maður leggst í mosa og í þriðja sæti var Lukasz Tadeusz Krawczyk, 9. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Hjartað.

Viðurkenningar hlutu Nína Rut Þorvarðardóttir, Jóhanna Líf Heimisdóttir, Högni Freyr Harðarson, Hrafnhildur Freyja Einarsdóttir, Áróra Ingibjörg Magnúsdóttir og Dagur Andri Svansson.

Um Brynju Hjálmsdóttur

Brynja Hjálmsdóttir (f. 1992) er með BA-gráðu í kvikmyndafræði og MA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Hún hefur sent frá sér ljóðabækurnar Okfruman (2019) og Kona lítur við (2021) og átt skáldverk í fjölda safnrita og tímarita. Brynja hefur hlotið Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókabúða og verið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Rauðu hrafnsfjaðrarinnar. Meðfram ritstörfum hefur Brynja starfað sem bóksali, kennari, textasmiður og gagnrýnandi.

Um Ljóðstaf Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör er haldinn af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar en efnt var til samkepninnar árið 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör (1917- 2000. Verðlaunahafar hljóta peningaverðlaun og sigurskáldið hlýtur til varðveislu í eitt ár göngustaf Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali.

 

 

 

 

 

 

LJÓÐSTAFUR JÓNS ÚR VÖR 2022

ÞEGAR DAGAR ALDREI DAGAR ALDREI

 

Alltaf springa þau

á veturna

handarbökin

ekki í loft upp heldur eftir rásum

 

Skurðir kvíslast

skinn flagnar

eins og í mótmælaskini:

nú er nóg komið

 

Sprungur

í uppurinni uppsprettu

mósaíkmynd

fúgan milli flísanna er rauð

 

Rauðir skipaskurðir:

gluggar inn í annan heim

innanverðan heiminn

 

Hún ber smyrsl á öll þessi ósköp

eins og til að sparsla í gamlar holur

sem hún boraði ekki sjálf

ekki ein í það minnsta

en hér alltaf svo kalt og smyrslið

bara frýs

eins og hvað annað

 

Hér er auðvelt að gleyma

að sólin sé alvöru himintungl

 

En alltaf finnst fólk

sem er of latt

til að bera inn ljósin hundraðþúsund

sem það strengdi í trén

fléttaði um svalirnar

um handriðin og húnana

 

Fólkið er þreytt

 

Því hanga þau þarna enn

sindrandi

 

tær

 

Brynja Hjálmsdóttir

 

Rökstuðningur dómnefndar um sigurljóð Brynju Hjálmsdóttur

Ljóðið bregður upp næmri mynd af samofnum veruleika líkama, umhverfis og andlegs ástands í kuldanum og myrkrinu þegar veturinn virðist aldrei ætla að taka enda. Fúga milli flísa er rauð líkt og þornuð sár sem borið er smyrsl á til að verjast veðráttu og þaðan er leitað farvega inn á við.

 

Þetta er saga manneskju sem lifir í landi þar sem náttúruöflin leggja línurnar, sett fram í vel útfærðri sneiðmynd af íslensku skammdegi. En einnig er kafað dýpra, smyrslið verður að heiðarlegri tilraun til að koma ljóðmælandanum til bjargar í skurðum hversdagsins. Þótt sjái ekki til sólar veita jólaseríur sem ekki hafa verið teknar niður einhverja von, tær ljós sindra þótt aldrei virðist ætla að daga.

 

Höfundur fléttar saman mismunandi aðstæður í heilsteypta sögn þar sem myrkur og ljós raðast saman og mynda streng milli hins ytra og innra heims. Tóninn er tilgerðalaus og hreinskilinn, skýr og sterkur og grípur lesandann um leið í beittum og hrífandi samsetningum.