Áhrifaríkt að mæta á íbúafundi

Frá íbúafundi í Kársnesskóla.
Frá íbúafundi í Kársnesskóla.

Fimm íbúafundir verða haldnir í tengslum við hugmyndasöfnun í Okkar Kópavogi. Á Íbúafundum mæta íbúar hverfa í Kópavogi, fá kynningu á verkefninu og ræða svo sínar hugmyndir og tillögur í smærri hópurinn. Fundurinn velur svo bestu hugmyndirnar og þær komast í kosningu sem haldnar verða í ársbyrjun 2022.

Alls fara 20 hugmyndir úr hverju hverfi í kosningu og þar af allt að sjö af íbúafundi þannig að það að mæta á fund er áhrifarík leið til að koma hugmynd á framfæri.

Íbúafundirnir verða haldnir milli  kl 17.00 og 18:30 á eftirfarandi stöðum:

  • Fyrir íbúa á Kársnesi þriðjudaginn 21. september í Salnum.
  • Fyrir íbúa á Digranesi verður fundur fimmtudaginn 23. september í safnaðarsal Digraneskirkju.
  • Fyrir íbúa í Fífuhvammi (Lindir og Salir) mánudaginn 27. september í safnaðarsalur Lindakirkju.
  • Fyrir íbúa í Smárahverfi fimmtudaginn 30. september í veislusal Breiðabliks (stúkan) í Smáranum.
  • Fyrir íbúa í Vatnsenda þriðjudaginn 5. október í Hörðuvallaskóla.