Nú er hægt að kaupa áskriftarkort í akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Áskriftarkort eða tímabilskort fyrir fastar ferðir í í akstursþjónustu fyrir fatlað fólk standa nú til boða eftir að reglum var breytt. Fastar ferðir eru ferðir sem pantaðar eru með dags fyrirvara eða fyrir kl. 16.00 daginn áður.
- Gildistími áskriftarkortanna getur annað hvort verið 12 mánuðir eða 6 mánuðir.
- Gjald fyrir 12 mánaða kort miðast við árskort fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó sem er nú 33.600 kr.
- Gjald fyrir 6 mánaða kort miðast við 60% af árskorti fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó sem er nú 20.160kr.
- Áskriftarkort taka gildi þann 21. eftir að greiðsla hefur borist og gilda til og með 20. þess mánaðar sem áskriftin endar.
- Þau sem óska eftir að breyta sinni akstursþjónustu yfir í áskriftarkort eru beðin um að sækja um þá breytingu í gegnum í þjónustugátt Kópavogsbæjar.
Lesa meira um akstursþjónustu fatlaðs fólks.