Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna

Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026
Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Kópavogur, Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós – ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026.

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar innleiðingar farsældarlaganna. Lögin fela í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.

Farsæld barna verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð allra þeirra sem koma að lífi barna að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að mál fari í réttan farveg. Með skýrara verklagi og formlegum samráðsvettvangi í gegnum Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins hefur skapast sterkari grunnur fyrir markvissa samvinnu – þar sem enginn aðili vinnur einn, heldur saman að heildstæðum lausnum í þágu barnsins.

 

Fjölbreytt átak um allt höfuðborgarsvæðið

Afar fjölbreytt vinna fer fram í tilefni af farsældarvikunni. Í Kópavogi og hinum sveitarfélögunum á svæðinu verður boðið uppá innihaldsríka dagskrá m.a. fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum, tengiliðir í skólum munu vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum o.fl.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Geðheilsumiðstöð barna, býður upp á hádegiserindi á TEAMS alla vikuna þar sem fjallað verður um börn og skjánotkun, tengsl og samskipti, kvíða, málþroska og streitu í foreldrahlutverkinu. Erindin eru opin öllum og er nánari upplýsingar að finna hér: https://island.is/s/hh/frett/fjoeldi-stuttra-hadegiserinda-i-farsaeldarviku

Íþróttafélög á svæðinu minna þjálfara á mikilvægt hlutverk sitt þegar kemur að farsæld barna og fræða þá um hvernig þeir geta brugðist við hafi þeir áhyggjur. Tengiliðir framhaldsskóla vekja athygli nemenda, foreldra og starfsfólks á sínu hlutverki og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á hlutverk lögreglu í að styðja við börn og fjölskyldur í viðkvæmum aðstæðum.

 

Sameiginlegt markmið

Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu á svæðinu. Þegar ólík kerfi tala saman, deila ábyrgð og vinna samkvæmt sameiginlegu verklagi er betur hægt að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.

Markmiðið er að allt starfsfólk sem vinnur með börnum verði enn öflugra í að nýta verklag farsældar og að foreldrar og börn viti að öll börn hafa aðgengi að tengilið í nærumhverfi sem getur veitt ráðgjöf og leiðbeiningar og komið á samþættingu þjónustu þegar við á.

 
Kópavogur

"Farsældarvikan er kjörið tækifæri til að lyfta upp því góða starfi sem verið er að vinna með börnum í Kópavogi í tengslum við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þessi nýju lög hafa verið í innleiðingarferli hjá okkur undanfarin ár í nánu samstarfi við starfsfólk okkar sem vinnur með börnum á ólíkum vettvangi. Nú viljum við vekja athygli barna og fjölskyldna þeirra á farsæld barna og því að þau hafi greitt aðgengi að tengilið í nærumhverfi sínu sem veitir ráðgjöf og leiðbeinir um kerfið sem oft getur verið flókið að rata um. Segir Jóhanna Lilja skrifstofustjóri í innleiðingarteymi farsældar í Kópavogi.

 
Nánari upplýsingar um farsæld barna má nálgast á www.farsaeldbarna.is og á https://www.kopavogur.is/is/ibuar/born-og-fjolskyldur/farsaeld-barna