Kópavogsbær hefur opnað nýja upplýsingasíðu um uppbyggingu miðbæjarins á slóðinni midbaer.kopavogur.is. Á síðunni má finna allar helstu upplýsingar um uppbyggingu miðbæjar Kópavogs, settar fram í nýrri og notendavænni umgjörð sem auðveldar íbúum að fylgjast með framgangi verkefnisins.
Á nýju miðbæjarsíðunni eru sömu upplýsingar og áður voru aðgengilegar á eldri vef, en framsetningin hefur verið endurbætt til að gera efnið skýrara og aðgengilegra. Markmiðið er að sameina á einum stað upplýsingar um skipulag, framkvæmdir, tímalínu, upplýsingafundi og nýjustu tilkynningar sem varða miðbæinn.
Uppbygging miðbæjar Kópavogs er hluti af langtímaþróun svæðisins með það að markmiði að styrkja miðbæinn sem lifandi mannlífs- og þjónustukjarna fyrir íbúa bæjarins. Þar er horft til fjölbreyttrar byggðar, bættrar aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, auk aukinnar þjónustu og mannlífs í tengslum við menningarhús, stjórnsýslu og almenningsrými.
Á vefsíðunni geta íbúar meðal annars:
- kynnt sér skipulagsferlið og helstu forsendur uppbyggingar
- fylgst með framvindu framkvæmda og tímabundnu raski,
- nálgast upplýsingar um íbúasamráð og upplýsingafundi,
- og fundið nýjustu tilkynningar og gögn sem tengjast miðbænum.
Íbúar Kópavogs eru hvattir til að heimsækja síðuna á midbaer.kopavogur.is, skoða efnið og nýta sér upplýsingarnar sem þar eru aðgengilegar. Síðan verður uppfærð reglulega eftir því sem verkefninu vindur fram. Einnig er verið að mála veggmynd á Hálsatorgi sem vekur athygli á uppbyggingunni í miðbænum.