Leikskólinn Lækur er réttindaleikskóli UNICEF og er myndin tekin þegar tekið var við viðurkenningunni.
Í dag, 6. febrúar, er Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur. Á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar í leikskólakennslu sín fyrstu samtök.
Markmið dagsins er að efla jákvæða umræðu um leikskólastarf og beina sjónum samfélagsins að því faglega, skapandi og metnaðarfulla starfi sem á sér stað í leikskólum landsins alla daga.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið og ómissandi hluti menntakerfisins. Hann er mikilvægur hlekkur í námi hvers einstaklings og kröfur og væntingar til leikskólastarfs fara sífellt vaxandi. Leikskólakennarar, stjórnendur og allt starfsfólk leikskólanna vinna að starfi sínu með fagmennsku að leiðarljósi og vita að „lengi býr að fyrstu gerð“.
· Í leikskóla er velferð og hagur barna hafður að leiðarljósi í öllu starfi því börnin eru í fyrsta sæti.
· Í leikskóla er leikur lífstjáning barna, hornsteinn starfsins og gleðigjafi þeirra.
· Í leikskóla læra börn í gegnum leik og daglegt starf, í örvandi og skapandi umhverfi.
· Í leikskóla er börnum veitt umönnun og menntun þar sem þau fá tækifæri til að láta til sín taka, eiga frumkvæði, leika sér og deila gleði með jafnöldrum sínum.
· Í leikskóla er hlustað á raddir barna og þau fá að hafa áhrif á sitt eigið líf.
Í Kópavogi fagna leikskólarnir Degi leikskólans með fjölbreyttum hætti. Markmiðið er að beina sjónum að því gróskumikla og mikilvæga starfi sem þar fer fram á hverjum degi, varpa ljósi á barnið í leikskólanum og hvetja til aukinnar umræðu um starfið.
Ýmsar hefðir hafa skapast í kringum daginn og margt skemmtilegt er gert til að gleðja bæði börn, foreldra og starfsfólk.
Meðal þess sem leikskólarnir bjóða upp á í tilefni dagsins er að:
· börnin fá að flæða um allan leikskólann
· leikskólarnir verða að ævintýralandi
· börnin hafa áhrif á daginn með því að kjósa hádegis- og síðdegishressingu og taka þátt í skipulagi dagsins
· boðið er í fjölskyldukaffi
· haldin eru náttfatapartý
· og börnin skapa ýmis listaverk
Dagurinn er hátíð leikskólans og þeirra sem þar starfa, og um leið áminning um mikilvægi leiks, gleði og skapandi náms barna.
Við óskum öllum börnum og starfsfólki leikskóla innilega til hamingju með daginn.