Kópavogur á farsældarþingi

Hluti fulltrúa Kópavogs á farsældarþingi 2023.
Hluti fulltrúa Kópavogs á farsældarþingi 2023.

Börn og ungmenni úr Kópavogi og starfsfólk bæjarins taka þátt í farsældarþingi sem fram fer 4. september 2023.

Börnin eru fulltrúar barnaþings og ungmennaráðs en starfsfólk kemur af mennta- og velferðarsviði bæjarins.

Á farsældarþingi eiga fagfólk, þjónustuveitendur, stjórnvöld, börn og aðstandendur víðtækt samtal um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna.

Nánari upplýsingar og streymi frá farsældarþingi.