Fagna byggingu nýs Kársnesskóla

Bæjarstjóri Kópavogs tók við teikningum frá væntanlegum nemendum í Kársnesskóla Skólagerði, sem sýn…
Bæjarstjóri Kópavogs tók við teikningum frá væntanlegum nemendum í Kársnesskóla Skólagerði, sem sýna draumaskólann.

Nemendur úr Kársnesskóla og leikskólabörn komu saman í hádeginu föstudaginn 10.september ásamt bæjarstjóra, bæjarstjórn Kópavogs og fulltrúum Kársnesskóla.

í tilefni þess að framkvæmdir eru hafnar við nýjan Kársnesskóla við Skólagerði.

Í tilefni dagsins færðu fulltrúar barna í 1.bekk og fulltrúar leikskólabarna bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni, myndir af draumaskólanum sínum. Þá tók kór Kársnesskóla lagið ásamt leikskólabörnum og börnum úr 1.bekk.

Nýr skóli við Skólagerði mun hýsa leikskóla og nemendur í 1.til 4.bekk Kársnesskóla. Stefnt er að því að skólinn verði tekinn í notkun árið 2023. 

Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla, bauð gesti velkomna og sagði mikla eftirvæntingu ríkja vegna nýs skóla. „Það verður mjög spennandi að hafa leik- og grunnskóla saman sem gefur tækifæri til nýjunga í skólastarfi okkar.“

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og  Margrét Friðriksdóttir, formaður menntaráðs og forseti bæjarstjórnar ávörpuðu gesti og sögðu fagnaðarefni að framkvæmdir væru hafnar.

Það var stór ákvörðun að rífa gamla skólann við Skólagerði, en það varð niðurstaðan eftir greiningu málsins og ég tel það góða lausn. Samastaða og einhugur hefur ríkt um verkefnið og langar mig að þakka skólasamfélaginu, bæjarstjórn og starfsfólki fyrir góða vinnu. Hér mun rísa glæsileg bygging sem verður miðpunktur samfélagsins á Kársnesi,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson.

„Skólasamfélagið hefur sýnt einstakan sveigjanleika og umburðarlyndi undanfarin ár og það verður gleðilegt að fylgjast með nýjum skóla sem við væntum að komi til móts við allt það nýjasta í kennslufræði og aðbúnaði fyrir börn og starfsfólk,“ sagði Margrét Friðriksdóttir.

Kársnesskóli við Skólagerði var rýmdur vorið 2017 vegna raka- og mygluskemmda og var afráðið að rífa húsnæði skólans og byggja nýtt.

Skipaður var stýrihópur sem meðal annars vann þarfagreiningu fyrir nýtt skólahúsnæði. Hópurinn stóð fyrir málþingum með nemendum, starfsfólki, foreldrum og nærsamfélagi og var afrakstur þeirra nýttur til undirbúnings að hönnun á nýju húsnæði sem verður úr timbri og fyrsta skólahúsnæði landsins sem verður Svansvottað.

Mannvit sá um hönnun í samstarfi við Batteríið en verktakafyrirtækið Rizziani de Eccher sér um byggingu húsnæðisins.