Fimmtán ár frá opnun Dvalar

Dvöl er í fallegu húsi í Reynihvammi 43 í Kópavogi
Dvöl er í fallegu húsi í Reynihvammi 43 í Kópavogi

Fimmtán ár eru frá því Dvöl, athvarf fyrir fólk með geðraskanir, var tekið í notkun í fallegu húsi að Reynihvammi 43 í Kópavogi. Af því tilefni verður afmælishátíð í Digraneskirkju 9. október frá kl. 14:00 til 16:00. Í Dvöl koma gestir á eigin forsendum til að njóta samverunnar við aðra gesti eða starfsmenn, horfa á myndbönd, föndra, fara í göngutúra, heimsækja söfn eða annað. Markmiðið er að draga úr einangrun og láta fólki líða vel.

Kópavogsbær, Kópavogsdeild Rauða Kross Íslands og Svæðisskrifstofa Reykjaness stóðu saman að opnun athvarfsins árið 1998.  Var það rekið í samstarfi þessara aðila fyrst um sinn.

Í ár tók Kópavogsbær alfarið  yfir rekstur athvarfins.

Dvöl á í samstarfi við önnur sambærileg athvörf og er fundað einu sinni á ári á landsmóti Rauða krossins.
 
Allir eru velkomnir í Dvöl.