Framúrskarandi kennari í Kópavogi

Birte Harksen kennari á Urðarhóli og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.
Birte Harksen kennari á Urðarhóli og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.

Birte Harksen, kennari við Heilsuleikskólann Urðarhól, er ein af handhöfum Íslensku menntaverðlaunanna sem veitt voru í dag.

Nánar:

Tilkynnt var um verðlaunahafa Íslensku menntaverðlaunanna í dag, föstudaginn 13. nóvember. Þeim er ætlað að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.

Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum auk hvatningarverðlauna og bárust fjölmargar tilnefningar í öllum þeirra. Viðurkenningarráð valdi úr þeim og kynnti forval sitt á alþjóðlegum degi kennara 5. október sl. Úrslitin voru síðan kynnt með rafrænum hætti í dag og má nálgast myndband um afhendinguna hér:

Verðlaunahafar Íslensku menntaverðlaunanna 2020:

Verðlaun sem framúrskarandi kennari hlýtur Birte Harksen kennari við Heilsuleikskólann Urðarhól í Kópavogi fyrir framúrskarandi kennslu og frumkvæði við að efla skapandi og leikmiðaða starfshætti í leikskólum með vefsvæðunum Börn og tónlist, Leik að bókum og Stafagaldri.

Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlýtur Dalskóli í Úlfarsárdal í Reykjavík fyrir þróun þverfaglegra skapandi kennsluhátta, meðal annars í svokölluðum  smiðjum og starfsþróunarverkefni þar sem kennarar rannsaka eigið starf.

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlýtur þróunarverkefnið Smiðjur í Langholtsskóla í Reykjavík sem hefur það markmið að auka veg þverfaglegra viðfangsefna með áherslu á sköpun, lykilhæfni og nýtingu upplýsingatækni í námi.

Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna hljóta að þessu sinni Ingvi Hrannar Ómarsson kennari og frumkvöðull og Utís hópurinn, sem er lærdómssamfélag brautryðjenda í kennsluháttum, fyrir framúrskarandi stuðning við starfsþróun íslenskra kennara með miðlun framsækinna hugmynda um skapandi skólastarf, nýsköpun og upplýsingatækni þar sem nemandinn er í brennidepli.

Að Íslensku menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Formaður viðurkenningarráðs verðlaunanna er Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur.

Ráðgert er að opna fyrir tilnefningar til menntaverðlaunanna 2021 í mars á næsta ári. Sjá nánari upplýsingar um verðlaunin á vefnum skolathroun.is/menntaverdlaun